...var að spá í þetta orð, "töff".. við íslendinar notum það yfir það sem okkur finnst flott,magnað,frábært,gott og svo framvegis. En ef við notum ensku merkingu þessa orðs sem er harðgerður já eða erfitt, er þá ekki sniðugt að segja í staðinn fyrir að segja: "djöfull ertu töff" og segja "djöfull ertu harðgerður" hehe já eða hvað?
eða ætli megi skíra stelpu Harðgerður, svona eins og Hallgerður, Ásgerður eða Ingigerður?
var bara að spá í þetta sko
bless
mánudagur, júní 27, 2005
eða ætli megi skíra stelpu Harðgerður, svona eins og Hallgerður, Ásgerður eða Ingigerður?
var bara að spá í þetta sko
bless
leiðir til að auðvelda við að ganga í augun á kvennfólkinu
Tíu aðferðir til að vera hetja í augum kvenna!
10. Bjargaðu dýri, td. kisu sem er föst upp í tré. Það er
alveg sama hvernig dýr það er, bara að það sé mjög hrætt og
að þú komir og bjargir því. Fáðu lánaðan kött í Kattholti,
helst kettling og fáðu vin þinn til að koma honum fyrir upp
í tré rétt áður en þú kemur með konuna. Konum finnst þetta
mjög karlmannlegt og elska dýravini.
9. Handsamaðu þjóf. Konur falla fyrir þessum gaurum sem
?þora?? Fáðu sama vin þinn og fékk köttinn lánaðann til að
leika fyrir þig þjóf, hlaupa að ykkur og hrifsa af konunni
veskið. Svo skaltu slást við hann smástund og að endingu
sleppir þú honum og segir: ? Ertu ómeidd? ? Ég ákvað að
sleppa þessu greyi?.hann á bara bágt,? og svo réttir þú
henni veskið. Konan á eftir að falla fyrir þessu.
8. Segðu að þú sért friðarsinni og sért hlynntur Greenpeace
því þig dreymi um að synda með höfrungum og að hvalir séu
vinir þínir. Segðu að Kárahnjúkar eigi að ?lifa?. Keyptu
gervitár í apóteki og laumaðu þeim án þess að konan sjái og
segðu svo þannig að hún heyri og SJÁI tárin renna niður
kinnarnar á þér: ?Ó blessuðu hvalirnir?og Kárahnjúkar.? Svo
skaltu gráta hátt þar til hún faðmar þig!
Mundu að útbúa bréf sem þú sendir til þín en er ?frá?
Greenpeace þar sem þar stendur að þeir hafi það marga
starfsmenn að ekki sé þörf á fleiri sjálfboðaliðum en þeir
kunni vel að meta aðstoð þína og að þú sért ?hetja? í
þeirra augum. Sýndu henni þetta bréf?
7. Farðu í bíltúr niður á Gróttu. Vertu búinn að biðja vin
þinn að fá litla frænda sinn, helst þann rauðhærða með
saklausa svipinn og fáðu hann til að liggja í fjöruborðinu
svoldið blautur en alveg hreyfingarlaus. Svo sérðu strákinn
og hleypur að honum og ?bjargar? honum. Vertu bara viss um
að vinur þinn hafi borgað honum 5000 krónur fyrir leikinn,
annars verður það vandræðalegt þegar hann rukkar þig!
6. Slökktu elda. Konur, hvar sem er og um allan heim elska
slökkviliðsmenn. Þeir eru hetjur í þeirra augum. Fáðu vin
þinn til að fara á undan ykkur og kveikja í rusli. Fáðu
hann til að hafa tvær 2 ltr. vatnsflöskur nálægt sem þú
sérð og slekkur svo eldinn með. Náðu í svoldið sót og
makaðu á andlitið án þess að hún sjái. Hún kemur til með að
dást af þér og þurrka það af þér með bros á vör.
5. Skipt um dekk. Fáðu vin þinn til að hleypa lofti úr
dekkinu á bílnum hennar. Skiptu svo um dekkið fyrir hana.
Ef heitt er í veðri, vertu þá ber að ofan og reyndu að
spenna alla vöðva sem þú mögulega getur. Ef það eru engir
vöðvar, ekki spenna þá! Þú þreytist bara og gætir lent í
því að ná ekki að klára að skipta um dekk og að hún þyfti
að gera það fyrir þig. Vertu samt eins snöggur og þú getur
og segðu að þú horfir oft á Formúlu 1 og lærir af þeim
bestu.
4. Reyndu að komast að því hvað hún hræðist mest. Sumar
konur eru dauðhræddar við mýs, rottur (reyndar karlmenn
líka) eða kóngulær. Reyndu að koma þeim fyrir heima hjá
henni og bíddu eftir öskrinu og stökktu þá til og
?bjargaðu? henni. Hún hleypur í fangið á þér og þá skaltu
segja: ?Ég passa þig alltaf mín kæra?.engin könguló fær að
taka þig frá mér.?
3. Á ljúfu nótunum. Fáðu stærsta, breiðasta, sterkasta og
hæsta vin þinn til að leika rudda í bíó. Hann sé fyrir
ykkur og sóði allt út. Láttu hann vera æstann og leystu
málið með því að tala við hann. Endaðu svo á að taka utan
um ?ruminn? og óska honum góðrar skemmtunar í bíó. Hvíslaðu
svo að henni: ?Ég nota alltaf þessa aðferð við að leysa
málið, með því að tala menn til.?
2. Næsta mál gerir þig að algjörri hetju og hún giftist þér
örugglega. Vertu mjög mikið í kringum vinafólk þitt sem á
von á barni, helst ef kona vinar þíns er komin vel
framyfir. Vertu með latex hanska í jakkavasanum og tilbúinn
að taka á móti barninu. Ef kona vinar þíns er að fara fæða,
reyndu að vera sá sem tekur á móti. Rifjaðu upp allar
bíómyndir og alla ER þættina og segðu: ?Anda inn og
út?.anda rólega?já rembast nú?rembast?.alveg að koma?sé í
kollinn þetta er að koma??
1. Farðu út á leigu og taktu CITY OF ANGELS með Meg Ryan,
You Got Mail og fl. myndir og settu þær við hliðina á
sjónvarpinu þínu. Keyptu jarðaber og vertu búinn að dífa
þeim í súkkulaði og kveiktu á kertaljósi. Réttu henni svo
fjarstýringuna af sjónvarpinu, stattu upp og segðu: ?Heyrðu
elskan, finndu eitthvað skemmtilegt fyrir okkur að horfa á??
? Gangtu svo inn í eldhús og gerðu jarðaberin klár. Vertu
samt búinn að snúa rafhlöðunum í fjarstýringunni öfugt
þannig að ekkert virkar hjá henni þegar hún reyndir að
stilla yfir á aðrar stöðvar. Þegar hún stendur upp til að
skoða málið betur, sér hún vonandi spólurnar með Meg Ryan.
Settu City of Angels í tækið og segðu að þú farir alltaf að
tárast yfir þessari mynd? Vertu svo tilbúinn með gervitárið
sem þú varst búinn að kaupa útaf friðarræðunni um hvalina
og Kárahnjúka. Hún kemur til með að vera í fanginu á þér
næstu 3-4 klst. sem er alveg frábært!
Það er vissulega auðvelt að gera sjálfan sig að hetju, en
við hjá pabbar.is mælum með að karlmenn komi bara fram eins
og þeir eru og fái ekki vini sína til að fá kettlinga
lánaða, eða 'leigja' börn til að leika niður á strönd.
Verum bara eins og við erum-það er best!
heimild: pabbar.is
laugardagur, júní 25, 2005

halló ég er hér - ennþá allavega...
Var að spá í að gefa blogginu frí í sumar en fannst það hálf glatað, þannig að ég held áfram.
ýmislegt hefur gerst hjá mér bæði gott og slæmt sem ég ætla ekki að tíunda nánar hér. Setti persónulegt met í gærkvöldi - hlustaði á heilann geisladisk án þess að skipta um lag í miðju lagi, þetta var nýji diskurinn með drengjunum í Weezer, hann fær 4 stjörnur af 5 svei mér þá, svo magnaður var hann.
Annars er ég svona þokkalegur.
góðar stundir
mánudagur, júní 13, 2005

því í andskotanum er hann alltaf afbakaður þegar hann er sungin fyrir íþróttaleiki - já eða bara alltaf held ég?
Ekki það að mér sé eitthvað annt um þetta lag. Það má t.d. ekki einu sinni breyta tóntegund þess íslenska, þó að það sé ekki hægt fyrir venjulegt fólk að syngja hann - held að hann nái yfir 3 áttundir.
En kanin sættir sig við hvaða útgáfu sem er. Heyrði einu sinni eitthvað boyband nauðga honum í ræmur fyrir superbowl en samt grét fólkið af stolti ! og klappaði þvíkíkt á eftir og í hálfleik sýndi Janet Jackson á sér annað brjóstið!
laugardagur, júní 11, 2005

var að hugsa um af hverju kindur eru kallaðar rollur? Þær eru líka kallaðar fé eða sauðfé, það er líklega frá fornu fari þegar bændur áttu kindur og gátu fengið peninga fyrir þær. Núna er rollubúskapur bara vesen.
Já það eru fleiri pælingar í sambandi við húsdýrin. Hestar eru gjarnan kallaðir hross - eru ekki hryssunar bara hross? Hvað eru karlhestar kallaðir?
Og svo ég tali ekki um kýrnar - þær eru kallaðar beljur (konur líka kallaðar beljur stundum) hvaðan kemur þetta? Mér finnst það vera niðurlægjandi að kalla kýr beljur, konur líka.
endilega tjáið ykkur ef þið hafið eitthvað til málana að leggja
miðvikudagur, júní 08, 2005

er auðvelt að spila á trommur?
ég held áfram með taktaumræðuna, var að spá í fólk sem segir að hitt og þetta sé ekkert mál. Ég lendi ósjaldan í því að sagt sé við mig að það sé svo auðvelt að spila á trommur og margir gerast svo djarfir að segja að trommur séu ekki hljóðfæri! Það má nú deila um það!
Ég er búinn að hitta eins og ég sagði marga sem segja þetta ekki vera neitt mál; situr bara og gerir svona (baða út höndunum og þykjast vera trommari). Eru allir sammála um að þetta sé svona einfalt?
Svo þegar ég næ að lokka viðkomandi á bak við trommusettið er komið allt annað hljóð í skrokkinn þegar þarf að halda á kjuðum, vera með báða fætur á pedulum og ætla að spila auðvelt beat - þá hváir fólk oftast og segir :" ég vissi ekki að þyrfti að nota fæturnar..." heheheeh!
Annars var ég að spá í að halda námsleið fyrir þá sem halda að þetta sé svona auðvelt.
Skáið ykkur bara í commentið og ég hef samband:)
klappnámskeiðið verður í haust
föstudagur, júní 03, 2005

Já það er stórt vandamál með flesta landa mína. Málið er að þeir (þið) kunnið ekki að klappa með tónlist - nú veltið þið fyrir ykkur : "það er nú ekkert mál að klappa". Jú það er mál, sérstaklega fyrir ykkur sem kunna það ekki! Ég sem trommuleikari tek vel eftir þessu og pirra mig alltaf jafn mikið á þessu. Tökum dæmi: þáttinn hjá Hemma Gunn þar sem áhorfendur eru í salnum og klappa gjarnan hátt og snjalt með lögunum sem þar eru flutt, en gera það ALLTAF vitlaust.
Ég ætla að reyna að útskíra þetta: Við kunnum öll að telja held ég. Í nánast öllum dægurlögum er svokallaður 4/4 taktur eða fjórir fjórðu sem auðvelt er að klappa með því við klöppum á 2 og 4 þ.e. ef við teljum ein-tveir-þrír-fjór, þá klöppum við: einn -KLAPP - þrír - KLAPP - einn-klapp - þrír -klapp.... og svo framvegis en ekki klapp-tveir-klapp-fjórir!! Sem er óþolandi að verða vitni að og eyðileggur lagið alveg að mér finnst.
það má vera að þetta skiljist ekki en ég get ekki skírt þetta betur - þeir sem skilja, átta sig á þessu, þið hin - Ekki klappa!
klappa fyrir því

(c) gulli.net
Gunnlaugur Jónsson
Gunnlaugur Jónsson