í heiðardaginn, ég er kominn heim með slitna skó - kominn heim að heilsa mömmu - kominn heim í leit að ró.....
já ég er fluttur HEIM takk fyrir !
Kom í gær með Steina, ferðin gek vel og allt í lukkunar velstandi hér - fæ ekki íbúðina mína fyrr en 20. mars og verð því að láta hótel mömmu duga þangað til:)
Búinn að fara smá göngutúr í morgun svona til að tékka hvort allt sé ekki örugglega á sínum stað, jújú það er allt eins og það á að vera sveimér þá.
svo maður tali ekki um veðrið hér - sól og blíða, ég skelli mér í sund á eftir.
bæ
miðvikudagur, febrúar 23, 2005

Ekki í réttri röð
á morgun ætla ég að fara aftur á Glaumbar og sjá meistaradeildarleiki þar - kannski öl með.
En annars er ég bara í ágætis skapi og hef það ljómandi....skítt heh!
þriðjudagur, febrúar 15, 2005
- Fara á þjóðminjasafnið okkar - fannst það ekkert spes, of dýrt og of lengi lokað miðað við hvernig þetta lítur út!
- Fara í keilu tvisvar - það var gaman,
- Fara og hitta Max á Dunhaganum - flottur kallinn
- Labba Ægissíðuna á enda í hina áttina
- Sjá árekstur í gær - engin meiðsl
- Fara á Gaumbar og sjá Liverpool vinna og sá líka All Star Game þar.
- ætlaði að fá mér Rebba í sjoppuni en Biggi kláraði allann ísinn - sveiattann
- sjá Einar Vilhjálmsson í sjoppuni nokkrum sinnum
- já og Pétur Jóhann sem hélt að sjoppan væri byggingavöruverslun - ætlaði að fá keyptar skrúfur :)
á morgun ætla ég að fara aftur á Glaumbar og sjá meistaradeildarleiki þar - kannski öl með.
En annars er ég bara í ágætis skapi og hef það ljómandi....skítt heh!
56% nörd - aðeins yfir meðallagi, er meiri svona tölvuhangari, veit samt smá um tölvur segi það ekki.
Tel mig ekki vera nörd, það eru aðrir í því bara heheh
Annars styttist í flutning hjá mér norður í land , hlakka mikið til að komast meðal manna!
mikið lifandi gladdist ég yfir úrslitum idol í kvöld.
Ég var svei mér þá farinn að halda að þessi annars ágæta keppni snérist um eitthvað annað en söng, en sem betur fer sigraði réttlætið - reyndar var það sama uppi á teningnum þegar hin útlensk ættaða Brynja datt út... já og í kvöld hann Helgi Þór.
Þau eru víst saman og fer því vel að þau séu ekki með í þessum sirkus og geta notið ástarinnar í friði - ekki geta þau sungið svo mikið er víst!
Minn maður, hann Davið Smári á gott bakland allavega hér í Sörlaskjólinu því við Biggi kjósum hann áfram hvað eftir annað. Hvað gerði hann ef hann ætti okkur ekki að?
Þessi Helgi Þór er svona týpa sem ég þoli engann veginn....OHHH! Svona gúmí töffari sem þykist geta allt og ég er viss um að hann hefur bara skælt á sviðinum þegar ljósin voru slökkt, kannski að ég spurji bara hana Lísu að því næst þegar ég sé hana.
Annars er ég nokkuð viss um að minn maður verði þarna eitthvað áfram bara vegna þess að hann er karlkyns og ætti að hafa traust bakland kynbræðra sinna. Ylfa dettur næst út og segi ég það bara vegna þess að hún er ekki með 90-60-90 eða hvað þetta er kallað.
Og sú sem vinnur Idol er: Hildur vala!! Já eða Heiða :)
Ég ræð mér ekki af kæti að Helgi sé farinn... svona svipuð tilfinning og..og....þegar man utd tapar!!
takk og bless
mánudagur, febrúar 07, 2005

komið þið sæl...
síðastliðinn föstudag lá leið mín í þjónustuver Símans í Ármúla þar sem ég fékk þær frétti að síminn minn væri ónýtur og ég þyrfti að fá mér nýjann, það var ekki upplífgandi miðað við það sem ég varð vitni að á leiðinni í strætó (leið 6) það kom ég inn í vagninn á Hofsvallagötu og settist ská aftan við ansi vafasaman einstakling. Vagninn fór af stað og á næstu stoppistöð kom drengur í vagninn með hjólabretti undir hendinni og settist hann fyrir framan mig, drengurinn og sá vafasami tóku tal saman um eitthvað sem þeir kölluðu að skeita, verð að viðurkenna það að ég skildi ekki allt sem á milli þeirra fór en auðvitað var ég fullur áhuga um þann vafasama, sem síðar kom í ljós að var eiturlyfjafíkill (grunaði það svo sem). Hann sagði unglingnum sem sagðist vera í 9. bekk þá 15 ára gamall frá ævi sinni í baráttuni við fíknina og öllu sem því tengdist og þegar við vorum u.þ.b. að keyra fram hjá Kjarvalsstöðum gerðist það sem ég gleymi sennilega aldrei. Sá vafasami fer í innanávasa á jakka sínum og dregur upp kunnuglegann hlut sem flestir hafa séð lækna brúka og einhverskonar teygju sem hann batt um upphandlegginn, ykkur er líklega farið að gruna hvað kauði var að framkvæma? Jújú mikið rétt hann var að fá sér í legginn. Þegar æðin var orðin tilbúinn stakk hann nálinni fagmannlega í og sprautaði - ég tók eftir því að það spýttist blóð upp í sprautuna, svona eins og í bíómyndunum. Verkið tók um 15 sek. og leið honum afar vel og lét fara vel um sig í vagninum og sagði svo við unglingin:"þetta skaltu aldrei gera!" Ég sá að blessuðum drengnum leist ekkert á þetta og fór úr vagninum við kringluna - ég hinsvegar lét mig hafa það þó ég væri hálf skelkaður enda sveitamaður að norðan og hef ekki séð neitt ólöglegra en landa.
svona er reykjavík í dag
þriðjudagur, febrúar 01, 2005

ja hérna ... ég var bara skammaður fyrir meint bloggleysi í kvöld - best að bæta út því.
Það er svosem allt gott að frétta héðan úr helv...borginni, kominn með heimþrá og get vart beðið eftir því að flytja aftur heim í sæluna fyrir norðan.
Segi það enn og aftur að ég finn það betur og betur að borgin á ekki við mig og ég ætla ekki að þrjóskast við og bíða eftir að ég fái yfir mig einhverja sælutilfinningu á að vera hér, það sem fer mest í taugarnar á mér hér er veðráttan - haust allt árið.
Ég hef samt haft gott af því að vera hér þessa mánuði og kynnst mörgu góðu fólki, sé ekki eftir neinu að hafa flutt hingað og tek því ekket illa þótt fólk segi það aumingjaskap að endast ekki lengur í höfuðborginni - þetta á hreinlega ekki við mig, sveitamanninn.
En nóg um það.
Liverpool vann loksins leik og er ég nokkuð sáttur við það, þetta hlítur að fara að koma hjá okkur - ekki getur það versnað mikið meira!

(c) gulli.net
Gunnlaugur Jónsson
Gunnlaugur Jónsson