1. í aðventu... LIVERPOOL!!!!!!!!!!!!!
ég á varla orð yfir gleðinni hjá mér í dag!!! Er varla búinn að ná mér eftir leik Liverpool og Arsenal áðan....þvílík bölvuð snilld:)
Ég var búinn að bóka jafntefli og var hundfúll með það þar sem mínir menn voru að spila mikið mun betur (eins og Gaupi hefði sagt) og svo var það bara í blálokin að Neil Mellor kom sá og sigraði með þessu líka þvílíka marki að ég hef sjaldan verið eins glaður eftir einn fótboltaleik.
Engan eigum við kransinn hér í Sörlaskjólinu til að kveikja á þessa sunnudaga sem framundan eru, og eitthvað minna er til af skrauti líka en hvur veit nema ráðin verði bragarbót þar á á næstu dögum..... Ellert nágranni er búinn að setja seríur hjá sér - það er ekki smekklegt hjáonum - ég er að tala um ellert b. scram sem er jú bróðir Bryndísar sem var með stundina okkar sem var alltaf á eftir húsinu á sléttuni þegar ég var lítill - þá var gaman:)
yfir og út....roger
mánudagur, nóvember 22, 2004

ég man það eins og gerst hafi í gær þegar hún Jónína litla systir mín kom í þennan heim, ég var hjá ömmu og afa í Sólheimum þegar var hringt og tilkynnt að væri fædd stúlka. Ég var 8 ára að horfa á Derrick - ég var svo glaður...
Ég óska Nínu til hamingju með daginn, og ég held að þetta sé í fyrsta skipti sem ég á ekki þann kost að sjá hana ekki á afmælisdaginn.
Annars var þetta bara góður dagur og kvöldið verður það án efa líka.
laugardagur, nóvember 20, 2004
Ég óska Nínu til hamingju með daginn, og ég held að þetta sé í fyrsta skipti sem ég á ekki þann kost að sjá hana ekki á afmælisdaginn.
Annars var þetta bara góður dagur og kvöldið verður það án efa líka.
skammast mín fyrir þessa ritstýflu ... það hefur nú ýmislegt gerst hjá mér undanfarið en ég tel mig ekki þurfa að koma með skýrslu um það hér að sinni a.m.k.
Aðeins farinn að þekkja mig betur hérna vestur í bæ, hér er gott að vera.
Fór með Hölla að skoða æfingarhúsnæði á fimmtudag niður að granda held ég - áttum í basli með að finna pleisið en það tókst og hittum við þar Danna Pollock sem rekur Tónlistarþróunarmiðstöðina (langt orð) kalla það bara TÞM - fín aðstaða þar svo sem. En þetta er kannski óhenntugt húsnæði fyrir okkur þar sem við verðum að deila rými með 2 öðrum böndum og getum þá ekki æft þegar okkur dettur í hug.
Það er búið að vera rosalega kalt hérna síðustu daga og borgarbúar ekki alveg undir það búnir að takast á við þennann mikla kulda. Það er eins og það hafi aldrei verið svona kalt hérna áður, og blessuð börnin á leikskólanum hafa aldrei séð annan eins snjó.
ég norðanmaðurinn hef nú séð það svartara en þetta og læt ekki á mig fá - segi bara: iss þetta er ekkert...heheh
föstudagur, nóvember 12, 2004

hafðið þið verið að poppa í örbylgjuofni og verið að vaska upp um leið, sko lyktin af vatninu hér er skrítin - svona hveralykt og svo þegar popplyktin blandast saman við vatnslyktina þá er eins og sé verið að sjóða fisk! furðulegur fjandi.
Það er bara allt gott að frétta af mér - engar áhyggjur :)
laugardagur, nóvember 06, 2004
Það er bara allt gott að frétta af mér - engar áhyggjur :)
í vinnuni í gær voru samstarfskonur mínar að tala um kunningja samfélag og hvað allt væri ósanngjarnt sem að snýr ekki að þeim eða þeim skildum - t.d. ef einhver þekkir einhvern eða er frændi eða eitthvað og fær vinnu eða afslátt á hrossakjöti fyrir að vera skildur eða tengdur viðkomandi.... svona fjölskyldufyrirtæki og þannig. Þá gat ég ekki stillt mig um að blanda mér í umræðuna og segja "ég er viss um að þið nýtið ykkur svona og finnst það í góðu lagi" það var hárrétt og þar með fóru þær að tala um eitthvað annað.....hihihih
mánudagur, nóvember 01, 2004
Nú rignir í borg óttans - fór í smá reisu í dag með ormana af leikskólanum, fórum niður á tjörn að gefa bra bra hehe ... og skoða ráðhúsið.
Helgin var þokkaleg bara smá djamm - ekkert að ráði samt
fór á laugardaginn með Ragga í nokkrar hljóðfæraverslanir til að skoða hvað þær hafa uppá að bjóða hér í reykjavíkini - langar að fá mér nýtt trommusett !!
og búinn að komast að því að það vinna bara kripplingar í BT sem hafa engan áhuga á því sem þeir eru að gera - ætlaði að kaupa mér hátalara við tölvuna og drengurinn sem aðstoðaði mið vildi engan vegin selja mér þá því þeir voru ekkert góðir - fallegi sölumaðurinn !!
bless

(c) gulli.net
Gunnlaugur Jónsson
Gunnlaugur Jónsson