ps. endilega skrifa í gestabókina mína... ha?
Argon rúlar!!!
áfram strákar lífið er ekki alla æfi!
lok
Sáuði fréttir á Rúv? Allt í skralli hjá tæknideildinni og ég hélt að Ella Hirst færi að grenja yfir öllu ruglinu. Hvað er með þessa textavél hjá sjónvarpinu? Hún hefur verið meira og minna bilandi síðan ég man eftir mér. Er þetta kannski textavél af tegundinni United? Hvernig væri nú að reka Randver og kaupa nýja textavél fyrir það sem sparast? Og svo kom ekkert um sænálina í Sandgerði. Þetta er náttla hneyksli!
og fleira og fleira sem menn vildu örugglega banna, en það er eitt sem mér finnst vanta í þetta, það eru alvöru óeirðir svona menn að henda grjóti og mólotoff kokteilum og löggan að sprauta vatni á alla (aðalega þá sem eru ekki að gera neitt af sér)
lengi lifi byltingin!!!
úr að ofan
Til er stétt manna í Guam sem hefur það að atvinnu að ferðast um sveitirnar og afmeyja hreinnar meyjar sem borga þeim fyrir greiðann. Ástæðan fyrir þessu er sú að í Guam er hreinum meyjum bannað að giftast!!
Í Líbanon er leyfilegt skv. lögum að eiga mök við dýr, er dýrin verða að vera kvenkyns. Dauðarefsing er að eiga mök við karldýr....ojbara!!!
Í Hong kong er konu leyfilegt að drepa eiginmann sinn ef hann hefur haldið fram hjá henni, en henni er þó aðeins leyfilegt að drepa hann beð berum höndum. (en ástkonuna má hún drepa hvernig sem henni sýnist)
Meira seinna...
Svo var eitt alger snilld. Pokarnir sem maður setti föt í og tengdi ryksuguna við og lofttæmdi pokann, ég þekki ekki vinsældir þessa "þarfaþings" en allir urðu að kaupa þetta til að geyma fötin sín í loftþéttum umbúðum.
Spaugstofann er bara helvíti skemmtileg, en þessi Gísli Marteinn er ekki svo skemmtilegur, hálf ömulegur!
§1 Ferðandi, ið hava fylt 18 ár, kunnu flyta inn toll- og avgjaldsfrítt til egna nýtslu:
Rúsdrekka yvir 22 rúmprosent alkohol: í mesta lagi 1 litur hægst 60 rúmprosent alkohol.
Vín o.a. ikki yvir 22 rúmprosent alkohol: í mesta lagi 2 litrar.
Øl í mesta lagi 2 litrar (6fl.) hægst 5,8 rúmprosent alkohol.
§2 Ferðandi, ið hava fylt 15 ár, kunnu flyta inn toll- og avgjaldsfrítt: í mesta lagi 200 stk. av sigarettum, ella 100 stk. av sigarillos, ella 50 stk. av sigarum ella 250 gr. av tubbakki.
§3 Ferðandi kunnu flyta inn toll- og avgjaldsfrítt: í mesta lagi 50 gr. av luktilsi, 25 cl. av rakivatni og 3 kg. av sukurlátuvørum.
stk2 Ferðandi kunnu umframt nevndu vørur flyta inn toll- og avgjaldsfrítt aðrar vørur, sum tilsamans hava virði, ið ikki er hægri enn 2500 kr.
stk3 Hvítvørur, radio-, video-, og sjónvarpstól, fløgu- og bandavspælarar, parabolir og lutir til hesi kunnu tó ikki flytast inn toll- og avgjaldsfrítt eftir stk2.
Það er rugl að vera fugl!
Bin laðen marmelaðen súkkulaðen remólaðen er víst ekki dauður úr öllum æðum
over and át!!
Á þessu herrans ári 2002 eru löglega taldir sem fullorðnir
einstaklingar á Íslandi allir þeir sem fæddust árið 1984.
Þegar þau fæddust kunnir þú að skrifa, lesa, leggja saman, draga frá og
hluta af margföldunartöflunni.
Þau muna sama og ekkert eftir Reagan tímabilinu og fréttu aldrei af því
þegar reynt var að drepa hann.
Þau muna heldur ekki eftir leiðtogafundinum sem haldinn var í Höfða og vita
fátt um Gorbatsjoff.
Þau voru ekki kynþroska þegar Persaflóastríðið hófst.
Fyrir þeim hefur sami páfinn verið í vatikaninu síðan þau fæddust.
Þau sungu aldrei "we are the world, we are the children". Þau voru 8 ára
þegar Sovétríkin féllu. Þau muna fátt eftir kalda stríðinu og síður eftir
austur- og vestur Þýskalandi, þó svo að þau hafi heyrt af þeim í sögutímum.
Þau eru of ung til þess að muna eftir því þegar Challenger
geimflaugin sprakk og munu sennilega aldrei vita hvað Pepsi-áskorunin var.
Fyrir þeim hefur AIDS verið til alla ævi.
Þau léku sér aldrei með ATARI tölvuleiki, geisladiskurinn kom á markaðinn
þegar þau voru ekki orðin eins árs, þau hafa aldrei átt plötuspilara og hafa
sennilega aldrei leikið sér með pac-man..
Þegar talað er um BETA vídeóspólur hafa þau ekki hugmynd.
Star-Wars og Súperman finnast þeim frekar slappar myndir og tæknibrellurnar
ömurlegar. Mörg þeirra hafa ekki hugmynd um að einu sinni var ekkert til
nema ríkissjónvarpið sem fór í frí á fimmtudögum og í júlí.
Þau muna heldur ekki eftir því þegar rás 2 var eina rásin í útvarpinu fyrir
utan rás 1, og sú eina sem spilaði annað en klassíska tónlist.
Þau hafa áræðanlega aldrei hlustað á útvarpssögur eða lög unga fólksins eða
óskalög sjúklinga og sjómanna, og Bessi Bjarnason hefur aldrei verið yngri.
Fá hafa séð svart-hvítt sjónvarp og þeim finnst fáránlegt að þurfa að hækka
og lækka og skipta um stöð án þess að hafa fjarstýringu.
Þau fæddust 3 árum eftir að Sony hóf sölu á Vasadiskóum og fyrir þeim hafa
hjólaskautar alltaf verið línuskautar.
Þeim hefur alltaf þótt farsímar og PC tölvur vera óskaplega eðlilegir
hlutir, ekkert nýtt.
Þau hafa ólíklega séð Húsið á sléttunni, Þórð húsvörð í Stundinni okkar og
Einu sinni var.
Þau hugsa aldrei um "Jaws" þegar þau fara í sjóinn, Michael Jackson hefur
alltaf verið hvítur...og hvernig er
mögulegt að John Travolta hafi einhverntíman dansað, svona feitur maður!
Olavia Newton-John? HVER??!! Þeim finnst lítið fyndið að vitna í Með allt á
hreinu, Nýtt líf og Stellu í orlofi.
Þau muna ekki hverjir Þorgeir Ástvaldsson, Geiri Sæm og Herbert Guðmundsson
eru. Nafnið Hemmi Gunn segir heldur ekki margt.
Madonna hefur alltaf verið fræg og nöfn eins og Duran Duran, Wham, Culture
club, Thompson twins, Tears for Fears, Rickshaw, Limahl, Terence Trent
D´arby, Talking heads og Modern Talking hljóma ekki kunnuglega.
Þau muna ekki eftir BMX hjóla tímabilinu og break-dance tímabilinu.
Þau hafa ekki hugmynd um hvað Millet úlpur og Don kano voru merkileg
fyrirbæri.
Þau vita sennilega ekki að strætó var einusinni grænn og að tíkallar og
fimmtíukallar voru seðlar. Þau hafa aldrei keypt fimmaurakúlur og muna
ekkert eftir því að hafa notað aura.
Þau vita ekki hvað Karnabær var og hafa aldrei séð Tommaborgara sem
merkilegt fyrirbæri.
Þau voru smákrakkar þegar við dönsuðum á Broadway eða Vilta tryllta Villa.
Þau hafa alltaf getað pantað mat heim og alltaf verið vön tilveru
kreditkorta.
Munið kæru vinir að þetta folk er unga fólkið í dag.
Merki þess að þú ert farin/n að eldast:
1. Þegar þú lest þennan texta og brosir.
2. þegar þú stundar íþróttir og lætur alla vita með miklu stolti.
3. þegar þú geymir bækur, vatnsglas og vaselín á náttborðinu.
4. þegar fyllerí og kelerí eru ekki lengur umræðuefni.
5. þegar börn tala við þig eins og þú talaðir við "fullorðna fólkið"
fyrir stuttu.
6. þegar "fullorðna fólkið" talar við þig eins og jafnaldra.
7. þegar þú þarft meira en hálfan dag til þess að jafna þig eftir
vökunótt.
8. Þegar vinir þínir eru allir giftir.
9. Þegar litla frændfólkið þitt er farið að sníkja sígarettur eða
áfengi.
10.þegar litla frændfólkið þitt veit meira um tölvur en þú.
11.þegar þú getur farið á ströndina og eytt heilum degi án þess að
fara í sjóinn.
12.Þegar þú stundar líkamsrækt í fötum sem fela líkamann í stað þess
að sýna hann.
13.Þegar þú vilt frekar hitta vini þína í stað þess að kjafta
klukkutímum saman í símann.
14.Þegar þú veist hvað þú vilt.
15.þegar þér líst betur á rauðvínskvöld en partý.
16.þegar þú horfir á fréttir og Kastljós og hefur virkilega áhuga.
17.þegar þú lest Moggann í heilu lagi og hefur skoðun á næstum öllu.
18.þegar þú ert aldrei spurð/ur um skilríki
19.þegar þú og vinir þínir eruð farin að finna grá hár.
20.þegar þú ákveður að senda þetta bréf til vina sem hafa áræðanlega
gaman af því.
þetta er með endemum (eindæmum) hvaða örtröð er þetta á síðuna getur maður ekki haft neitt í friði nú til dags? Nei Nei bara gamann að þessu og verið velkomin í bloggheim Sweepy!!
Ég var að horfa á þáttinn með Jóni Gnarr í gær og þótti hann ekki merkilegur , hvað er þessi Barði að gera þarna? Grautfúll og asnalegur , og Jón sjálfur lítið skárri, hann er kannski orðinn of frægur og þarf ekki lengur að hafa fyrir neinu því það hlæja margir af honum hvað sem henn gerir!! Mér fannst hann allt í lagi fyrst en svo fór að halla undan, því á svona litlu landi eru menn fjótir að fá leið á hlutum, nema hvað!! Jú þeir sem fíla Bubba hann er alltaf eins.
Það eru alltaf að koma krakkar til mín að safna servétum eða serjéttum, ég kannski búinn að koma mér vel fyrir svo er bankað og þá standa 3 litlar stelpur og spurja “við erum að safna servéttum” eða safna á tombólu!!! ég á ekki neitt handa þeim, nema kannski baunadós sem ég tými ekki að gefa þeim :) En hvað um það þá eru þetta bestu skinn. Ég man bara eftir sjálfum mér þegar við félagarnir vorum að safna svona drasli, þá fengum við fullt af hlutum sem við notuðum bara sjálfir og héldum aldrei tombólu (eða hlutaveltu) og skömmuðumst okkur ekkert fyrir það hehe!!
Meira seinna!!
Er það út af því að Asíubúar eru svona graðir, nei það getur ekki verið því þá værum við íslendingar mikið mikið
fleiri..;Þ, þegar mannkynið varð til byrjaði það væntanlega á núlli þ.e.a.s. það var ekki neinn neinstaðar held ég.
Núna eru fáir sem muna þetta vel því þetta var í gamla daga fyrir svona helling af milljónum ára.
En ef að ég sný mér aftur að Kíverjunum eða bara Asíu allri þá eru held ég flestir íbúar jarðar þar, en það er ekki
geðslegt að búa þar (sennilega af því þeir eru svo margir) jahá þá er þetta komið þeir koma allir til Íslands, því nú er ekki hægt að þverfóta fyrir
þessum asíubúum (nei ég er ekki rasisti!!)
Fyrir örfáum árum sá maður svertingja bara í sjónvarpinu og ef maður fór til
Reykjavíkur þá sá maður þá með berum augum og gat ekki beðið eftir því að segja vinunum frá því!! Og þessa gulu sá maður
ekki í sjónvarpinu heldur varð maður að sjá mynd með Bruce Lee til að sjá hvernig þessir menn litu út, ég bý á Dalvík eins
og þið kannski vitið ég fór í kaupfélagið í dag og sá 9 gula (og það voru kannski samtals 15 manns í búðinni!!).
Mér leið bara eins og í Hong Kong eða eitthvað það vantaði bara lifandi hænur í kjötborðið....svo borða þeir svo skrítinn mat eða er það bara bull því við íslingar borðum ekkert skárri mat en þeir.
------------------------------------------------------------
Af hverju heitir Rabbabari rabbabari? Hvaða fáráðlingur fann það út að hann ætti að heita það ?? Eða A-gúrka, ? Ég veit að þetta er asnalegt en samt finnst mér þetta skrítið, er einhver kall (eða kona) sem er bara í því að finna nöfn á hluti sem koma nýir hingað, “humm látum okku nú sjá...... þetta á að heita uuuum..bara eheh skófla!! já það er ágjætt!!
þetta er bara svona, ég skil ekki allt
Sem betur fer!!!!
ekki meira....búið í dag! :)
"Nei, í alvöru gefð'essu séns – mmmb slurp slurp, mmm – hann Gísli minn verður svo glaður – mmmm slurp slmm – hann Gísli minn verður svo glaður ef jarðaberjakókómjólkin kemst á markað – mmm slurp slurp mmmmm"
dr.G
Flokkur tækifærissinna kynnti i dag fyrirhugað framboð í komandi alþingiskosningum. Listann leiðir ræðismaður Botswana á Íslandi, Eyþór Arnalds, en efstu sæti listans skipa annars:
1. Eyþór Arnalds, ræðismaður
2. Jakob Frímann Magnússon, trúður
3. Árni Johnsen, glæpamaður
4. Bubbi Morthens, tónlistarmaður
5. Fjölnir Þorgeirsson, stjarna
Meðal helstu stefnumála eru opnun Íslensks sendiráðs í Botswana, ríkisframlög til popphljómsveita sem starfað hafa lengur en 25 ár og stórbættur aðbúnaður í íslenskum fangelsum. Á sviði menntamála er gert ráð fyrir að innleiða boxkennslu sem skyldugrein í grunnskóla og setja á fót fyrirsætubraut í fjölbrautaskólum.
(tekið af baggalúti.is)
Ég var að horfa á þátt í gær með systir minni n.t.t. Ally McBeal eða hvað sem hún heitir.......... Þílíkt og annað eins rugl!!!! Svo eru konur búnar að stofna Allímakkbíl félög út um allt og gera ekkert annað en að horfa á þetta daginn út og daginn inn og hlusta svo á þessa Vondu Sjeppard sem syngur reyndar ágjætlega, þessi þáttur í gær snérist um það að e-h kall mátti ekki reyna að fljúga og fór í mál við einhvern og þá mátti hann það fór uppá þak með vængi og flaug!!!! Ég er reyndar ekki mikið inn í þessu en það sem ég sá var algert rugl. Ég hef enn ekki komist upp á lag með að horfa á Friends, finnst það bara ekki skemmtilegt, svo eru krakkar að taka þættina á video sem þeir eru búnir að sjá aftur og aftur, ekki það að ég hafi ekki húmor, þá á ég það bara inni að horfa á Vini.
VÁ!!! Ég var að skoða teljarann minn og ég bjóst nú ekki við þessu!! meira en 200 manns búnir að skoða þessa síðu?? Takk fyrir að nenna að skoða þetta bull í mér, og ef að þig viljið tjá ykkur um það sem ég er að skrifa hér, endilega sendið mér póst.
Takk aftur..
Svona látum við plata okkur trekk ofaní hvað með svona rugli, eins og sjónvarpsmarkaðurinn var á sínum tíma. Þar voru vörur sem voru alveg ómissandi eins og þessi super slicer eða hvað það hét, sem átti að auðvelda öllum að skera niður hina ýmsu hluti, t.d. tómata. Þetta var alveg imbafrítt í imbanum og ég komst í tæri við þennan undragrip og stóðst ekki mátið á testa þetta og hvað gerðist? jújú ég bjó til þetta fína tómatragú því þetta virkaði ekki!! Veit um nokkra sem stórslösuðu sig á þessu apparati sem átti víst ekki að vera hægt.
Ég trúi ekki á svona lygar og hananú!!!
Hvaða bull er þetta, 13 ára með hass á Blönduósi, er ekki málið að fara að taka á svona málum. Svo segja félagsmálayfirvöld að þetta sé ekki vandamál á Blönduósi þar sem drengurinn var úr borginni??!!
Eiga ekki allir geessemm síma? Það held ég allavega það eru litlir krakkar svona 7 ára með svona, það er bara bull sko, svo varð ég vitni að einu skemmtilegu um daginn, ung stelpa kom inní sjoppu og spurði hvort hún mætti ekki hringja -"jújú ekkert mál síminn er í horninu þarna" sagði búðarkonan og stelpan gekk að símanum og hváði " hvað er nú þetta?? ég kann ekkert á svona!" heh þá var þetta svona gamall grár skífusími!!!!!!!!! ef að engin heyrist sónn bilaður er telefónn !!!
yfir og úr
Áttu erfiðan dag? Spáðu í þetta!!:
Hann var að gera við hjólið sitt á veröndinni, eitthvað með vélina að gera,
allt í einu einhverra hluta fór hjólið í gír og maðurinn sem hélt sem
fastast í stýrið dróst með hjólinu í gegnum glerhurð og inn í húsið sitt og
endaði þar með hjólið ofan á sér. Konan hans sem heyrði lætin kom
hlaupandi inn í borðstofuna og kom að manni sínum liggjandi og alblóðugum
innan um glerbrot og hurðabrak og hjólinu á hliðinni. Stökk hún í símann og
hringdi á sjúkrabíl en þar sem húsið stendur á frekar hárri hæð hljóp hún á
móti til að vísa þeim leið upp tröppurnar .
Eftir að sjúkrabíllinn hafði komið og farið með manninn hennar á spítalann
tók konan sig til og rétti upp hjólið og ýtti því útfyrir, varð hún þá var
við að bensín hafði lekið úr tanknum yfir gólfið sótti hún bréfþurkkur og
lagði í bensínið til að þurka það upp henti hún síðan öllu saman
í klósettið. Á meðan á þessu stóð var gert að sárum manns hennar og mátti
hann fara heim að því loknu.
Þegar hann kom heim og leit á brotna hurðina og beyglað hjólið
fylltist hann vonleysi settist á klósettið og reykti sígarettu, eftir
smókinn skaut hann sígarettunni niður á milli fóta sér í skálina. Konan sem
var í eldhúsinu
heyrði mikla sprengingu og mann sinn öskra, stökk hún inn á klósett og fann
mann sinn liggjandi á gólfinu með buxurnar í tætlum og rasskinnarnar
skaðbrenndar ásamst lærunum og slátrinu Grey konan stökk í símann og
kallaði
aftur á sjúkrabíl. Komu sömu mennirnir og áður og konan sem fyrr hitti þá
niður á götu. Eftir að mennirnir höfðu lagt hann á börurnar og byrjað að
bera hann niður á götu
fóru þeir að forvitnast um hvað hafði gerst, konan útskýrði þetta fyrir þeim
fengu þá sjúkraliðarnir mikið hláturskast og við það missti annar þeirra
fótana í tröppunum skipti engum togum að maðurinn féll úr börunum og valt
niður tröppurnar og handleggsbrotnaði. Þetta heitir að eiga vondan
dag..........Líður þér betur? Eigðu
góðan dag!!
Þetta á að hafa gerst í Florida
Hvaða gosæði er þetta nú eru komnar 3 nýjar tegundir á markaðinn, vanilla kóla og diet lemon, blátt viðbjóðslegt pepsí og pepsí twist eikkvað lemon kjaftæði líka. Er þetta kólastríð á milli pepsi og kók? Hver man ekki eftir tegungum sem komu og voru svo vondar að það var hætt að framleiða þær eins og t.d. cherry coke (víðbjóður) og svo líka koffeinlaust, sykuraust og bragðlaust kók (var kallað ritgerðarkók af því að maður var svo lengi að segja hvað maður ætlaði að fá:) Og hvað varð um RC Kóla? og spur? svona kemur þetta og fer Þetta er bara svona!!!
og kakkarnir prumpa með lalalalalalalalalalala!!!!
Svo á leiðinni heim fórum við bræðunir í Ak-inn og fengum okkur pylsu, ég fékk mér malt (eins og Guðni land) en unglingurinn heimtaði Pepsi blue!! What?? eitthvað sull sem er eins og rúðuvökvi eða frostlögur og alveg rosalega vont og til að toppa þetta voru jólapakkar á flöskunni og von um vinninga og allez, þetta er svosem allt í lagi en þetta kaupi ég ALDREI.
Malt er gott
Gunnlaugur Jónsson